[is]
Framkvæmdastjórnin ætti tryggja framkvæmd þessara mikilvægu verkefna, einkum að því er varðar hlutverk i) yfirvaldsins sem ber ábyrgð á vottunarstefnu fyrir samvirk skynvædd flutningakerfi að því er varðar stjórnun vottunarstefnunnar og heimild vegna dreifilyklaskipulags, ii) stjórnanda traustlista að því er varðar gerð og uppfærslu evrópsks traustlista vegna vottana og, hvað varðar reglulega starfsemi, skýrslugjöf yfirvaldsins sem ber ábyrgð á vottunarstefnu fyrir samvirk skynvædd flutningakerfi að því er varðar öruggan rekstur traustlíkansins fyrir samvirk skynvædd flutningakerfi í heild og iii) tengiliðar fyrir samvirk skynvædd flutningarkerfi að því er varðar meðhöndlun allra samskipta við stjórnendur rótarvottunarstöðva og birtingu dreifilyklaskilríkja stjórnanda traustlistans og evrópska traustlistans vegna vottana.
[en] The Commission should ensure that those essential tasks are carried out, in particular as concerns the roles of (i) the C-ITS certificate policy authority in managing the certificate policy and the PKI authorisation; (ii) the trust list manager in generating and updating the ECTL and, for regular activity, in reporting to the C-ITS certificate policy authority as regards the overall secure operation of the C-ITS trust model; and (iii) the C-ITS point of contact in handling all communication with root certification authority managers and publishing the public key certificate of the trust list manager and the ECTL.