Hugtakasafn þýðingamiðstöðvar utanríkisráðuneytisins
Hugtakasafn : Eitt hugtak
- ÍSLENSKA
- greiðslustreymisreikningur sýndareigna
- ENSKA
- payable-through crypto-asset account
- Svið
- fjármál
- Dæmi
-
[is]
... skulu aðildarríki, til viðbótar við ráðstafanirnar um áreiðanleikakönnun á viðskiptamönnum sem mælt er fyrir um í 13. gr. þessarar tilskipunar, krefjast þess að þjónustuveitendur sýndareigna, þegar þeir stofna til viðskiptatengsla við slíkan aðila:
a)
ákvarði hvort svarandinn hafi starfsleyfi eða sé skráður,
b)
afli fullnægjandi upplýsinga um gagnaðilann til að skilja til fullnustu eðli starfsemi hans og meta út frá fyrirliggjandi, opinberum gögnum orðstír viðkomandi og gæði eftirlits hjá honum,
c)
leggi mat á eftirlit gagnaðilans með því að ekki fari fram peningaþvætti og fjármögnun hryðjuverka,
d)
afli samþykkis frá yfirstjórn áður en nýjum millibankaviðskiptum er komið á,
e)
skjalfesti ábyrgð hvers aðila að millibankatengslunum, eftir því sem við á,
f)
fái staðfest, þegar um greiðslustreymisreikninga sýndareigna er að ræða, að gagnaðilinn hafi staðfest deili á viðskiptamanninum og gert áframhaldandi könnun á áreiðanleika upplýsinga um viðskiptamenn, sem hafa beinan aðgang að reikningum þess sem viðskiptin eru við og geti, sé þess óskað, veitt stofnuninni sem viðskiptin eru við viðeigandi upplýsingar um viðskiptamann sem aflað hefur verið með könnun á áreiðanleika upplýsinga hans. - [en] ... Member States shall, in addition to the customer due diligence measures laid down in Article 13 of this Directive, require crypto-asset service providers, when entering into a business relationship with such an entity, to:
a)
determine if the respondent entity is licensed or registered;
b)
gather sufficient information about the respondent entity to understand fully the nature of the respondents business and to determine from publicly available information the reputation of the entity and the quality of supervision;
c)
assess the respondent entitys AML/CFT controls;
d)
obtain approval from senior management before establishing new correspondent relationships;
e)
document the respective responsibilities of each party to the correspondent relationship;
f)
with respect to payable-through crypto-asset accounts, be satisfied that the respondent entity has verified the identity of, and performed ongoing due diligence on, the customers having direct access to accounts of the correspondent entity, and that it is able to provide relevant customer due diligence data to the correspondent entity, upon request. - Rit
- [is] Reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) 2023/1113 frá 31. maí 2023 um upplýsingar sem fylgja skulu við millifærslu fjármuna og tiltekinna sýndareigna og um breytingu á tilskipun (ESB) 2015/849
- [en] Regulation (EU) 2023/1113 of the European Parliament and of the Council of 31 May 2023 on information accompanying transfers of funds and certain crypto-assets and amending Directive (EU) 2015/849
- Skjal nr.
- 32023R1113
- Aðalorð
- greiðslustreymisreikningur - orðflokkur no. kyn kk.
Takk fyrir
Ábendingin verður notuð til að bæta gæði þjónustu og upplýsinga á vef Stjórnarráðsins. Hikaðu ekki við að hafa samband ef þig vantar aðstoð.
