Hugtakasafn þýðingamiðstöðvar utanríkisráðuneytisins
Hugtakasafn : Eitt hugtak
- ÍSLENSKA
- núllmat
- ENSKA
- zero rating
- Svið
- umhverfismál
- Dæmi
-
[is]
fyrirkomulag til að minnka losunarstuðul eldsneytis eða efniviðar til að staðfesta:
a) ef um er að ræða lífmassa, að hann sé í samræmi við viðmiðanirnar um sjálfbærni eða sparnað í losun gróðurhúsalofttegunda sem kveðið er á um í 2. til 7. mgr. og 10. mgr. 29. gr. tilskipunar (ESB) 2018/2001, eins og tilgreint er í 5. mgr. 38. gr. þessarar reglugerðar,
b) ef um er að ræða endurnýjanlegt eldsneyti af ólífrænum uppruna eða endurunnið kolefniseldsneyti, að það sé í samræmi við viðmiðanirnar um sparnað í losun gróðurhúsalofttegunda í samræmi við 29. gr. a í tilskipun (ESB) 2018/2001, eins og tilgreint er í 3. mgr. 39. gr. a í þessari reglugerð,
c) ef um er að ræða tilbúið lágkolefniseldsneyti, að það sé í samræmi við viðmiðanirnar um sparnað í losun gróðurhúsalofttegunda, sem kveðið er á um í 13. lið 2. gr. tilskipunar (ESB) 2024/1788 um sameiginlegar reglur um innri markaði fyrir endurnýjanlegt gas, jarðgas og vetni, og fyrri innskil losunarheimilda samkvæmt tilskipun 2003/87/EB fyrir fangað kolefni sem er nauðsynlegt til að framleiða tilbúna lágkolefniseldsneytið, eins og tilgreint er í 4. mgr. 39. gr. a í þessari reglugerð, nema umrætt fangað kolefni sé núllmetið kolefni eins og það er skilgreint í lið 38f í 3. gr. - [en] means the mechanism by which the emission factor of a fuel or material is reduced in order to acknowledge:
a) in case of biomass, its compliance with sustainability or greenhouse gas savings criteria provided by Article 29(2) to (7) and (10) of Directive (EU) 2018/2001, as specified in Article 38(5) of this Regulation;
b) in case of RFNBO or RCF, its compliance with the greenhouse gas savings criteria in accordance with Article 29a of Directive (EU) 2018/2001, as specified in Article 39a(3) of this Regulation;
c) in case of synthetic low-carbon fuels, its compliance with the greenhouse gas savings criteria provided by Article 2 point 13 of Directive (EU) 2024/1788 on common rules for the internal markets in renewable gas and natural gas and in hydrogen; and the prior surrendering of allowances under Directive 2003/87/EC for the captured carbon necessary to produce the synthetic low-carbon fuels, as specified in Article 39a(4) of this Regulation, unless that captured carbon is zero-rated carbon as defined in Article 3(38f). - Rit
-
[is]
Framkvæmdarreglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2024/2493 frá 23. september 2024 um breytingu á framkvæmdarreglugerð (ESB) 2018/2066 að því er varðar uppfærslu á vöktun á losun gróðurhúsalofttegunda og skýrslugjöf um losunina samkvæmt tilskipun Evrópuþingsins og ráðsins 2003/87/EB
- [en] Commission Implementing Regulation (EU) 2024/2493 of 23 September 2024 amending Implementing Regulation (EU) 2018/2066 as regards updating the monitoring and reporting of greenhouse gas emissions pursuant to Directive 2003/87/EC of the European Parliament and of the Council
- Skjal nr.
- 32024R2493
- ENSKA annar ritháttur
- zero-rating
Takk fyrir
Ábendingin verður notuð til að bæta gæði þjónustu og upplýsinga á vef Stjórnarráðsins. Hikaðu ekki við að hafa samband ef þig vantar aðstoð.
