Hoppa yfir valmynd

Hugtakasafn þýðingamiðstöðvar utanríkisráðuneytisins

Leitarorð Leitartungumál
Nánari leit  |  Fletting sviða

Hugtakasafn : Eitt hugtak
ÍSLENSKA
gagnamilligönguþjónusta
ENSKA
data intermediation services
Svið
upplýsingatækni og fjarskipti
Dæmi
[is] Koma ætti á fót þverlægu fyrirkomulagi fyrir endurnotkun tiltekinna flokka verndaðra gagna sem eru í vörslu opinberra aðila, veitingu gagnamilligönguþjónustu og þjónustu á grundvelli gagnavildar (e. data altruism) innan Sambandsins. Tilteknir eiginleikar mismunandi geira geta kallað á að hönnuð verði geiratengd gagnamiðuð kerfi sem jafnframt byggja á kröfum þessarar reglugerðar.


[en] A horizontal regime for the re-use of certain categories of protected data held by public sector bodies, the provision of data intermediation services and of services based on data altruism in the Union should be established. Specific characteristics of different sectors may require the design of sectoral data-based systems, while building on the requirements of this Regulation.


Skilgreining
[is] þjónusta sem miðar að því að koma á viðskiptasamböndum í þeim tilgangi að ótilgreindur fjöldi skráðra aðila og handhafa gagna annars vegar og gagnanotendur hins vegar geti deilt gögnum sín á milli, með tæknilegum eða lagalegum aðferðum eða á annan hátt, þ.m.t. í þeim tilgangi að skráðir aðilar geti neytt réttar síns í tengslum við persónuupplýsingar, þar sem a.m.k. eftirfarandi er undanskilið:

a) þjónusta sem fær gögn frá handhöfum gagna og hópar þau, auðgar eða breytir þeim í þeim tilgangi að auka verðmæti þeirra verulega og gefur út leyfi til gagnanotenda til að nota gögnin sem verða til án þess að koma á viðskiptasambandi milli handhafa gagna og gagnanotenda,

b) þjónusta sem leggur áherslu á miðlun höfundarréttarvarins efnis,

c) þjónusta sem eingöngu einn handhafi gagna notar til að hægt sé að nota gögn í vörslu hans eða sem margir lögaðilar nota innan lokaðs hóps, þ.m.t. sambönd við birgja eða viðskiptamenn eða samstarf sem komið er á með samningi, einkum það sem hefur það að meginmarkmiði að tryggja virkni hluta og búnaðar sem tengist neti hlutanna,

d) gagnadeilingarþjónusta á vegum opinberra aðila sem miðar ekki að því að koma á viðskiptasambandi (32022R0868)


[en] a service which aims to establish commercial relationships for the purposes of data sharing between an undetermined number of data subjects and data holders on the one hand and data users on the other, through technical, legal or other means, including for the purpose of exercising the rights of data subjects in relation to personal data, excluding at least the following:

a) services that obtain data from data holders and aggregate, enrich or transform the data for the purpose of adding substantial value to it and license the use of the resulting data to data users, without establishing a commercial relationship between data holders and data users;

b) services that focus on the intermediation of copyright-protected content;

c) services that are exclusively used by one data holder in order to enable the use of the data held by that data holder, or that are used by multiple legal persons in a closed group, including supplier or customer relationships or collaborations established by contract, in particular those that have as a main objective to ensure the functionalities of objects and devices connected to the Internet of Things;

d) data sharing services offered by public sector bodies that do not aim to establish commercial relationships (32022R0868)


Rit
[is] Reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) 2022/868 frá 30. maí 2022 um evrópska gagnastjórnun og um breytingu á reglugerð (ESB) 2018/1724 (gagnastjórnunargerðin)

[en] Regulation (EU) 2022/868 of the European Parliament and of the Council of 30 May 2022 on European data governance and amending Regulation (EU) 2018/1724 (Data Governance Act)

Skjal nr.
32022R0868
Orðflokkur
no.
Kyn
kvk.

Var efnið hjálplegt?Nei
Takk fyrir

Ábendingin verður notuð til að bæta gæði þjónustu og upplýsinga á vef Stjórnarráðsins. Hikaðu ekki við að hafa samband ef þig vantar aðstoð.

Af hverju ekki?

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum

Vefurinn notar vefkökur til að bæta upplifun notenda og greina umferð um vefinn. Lesa meira