Hugtakasafn þýðingamiðstöðvar utanríkisráðuneytisins
Hugtakasafn : Eitt hugtak
- ÍSLENSKA
- atvikariti
- ENSKA
- event data recorder
- Svið
- vélar
- Dæmi
-
[is]
Í II. viðauka þeirrar reglugerðar ætti að vera skrá yfir kröfurnar fyrir gerðarviðurkenningu vélknúinna ökutækja að því er varðar atvikarita þeirra og fyrir gerðarviðurkenningu þeirra kerfa sem aðskildar tæknieiningar. Nauðsynlegt er að bæta við þær kröfur með því að setja ítarlegar, samræmdar reglur um sértækar prófunaraðferðir og tæknilegar kröfur fyrir slíkar gerðarviðurkenningar.
- [en] Annex II to that Regulation should list requirements for the type-approval of motor vehicles with regard to their event data recorders and for the type-approval of those systems as separate technical units. It is necessary to supplement those requirements by establishing detailed harmonised rules on the specific test procedures and technical requirements for such type-approval.
- Skilgreining
-
kerfi sem hefur það eina markmið að skrá og geyma áríðandi mæliþætti tengda árekstrum og upplýsingar stuttu fyrir árekstur, á meðan á honum stendur og eftir árekstur (32019R2144)
- Rit
-
[is]
Framseld reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2022/545 frá 26. janúar 2022 um viðbætur við reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) 2019/2144 með því að mæla fyrir um ítarlegar reglur sem varða sértækar prófunaraðferðir og tæknilegar kröfur vegna gerðarviðurkenningar vélknúinna ökutækja að því er varðar atvikarita þeirra og vegna gerðarviðurkenningar þeirra kerfa sem aðskildar tæknieiningar og um breytingu á II. viðauka við þá reglugerð
- [en] Commission Delegated Regulation (EU) 2022/545 of 26 January 2022 supplementing Regulation (EU) 2019/2144 of the European Parliament and of the Council by laying down detailed rules concerning the specific test procedures and technical requirements for the type-approval of motor vehicles with regard to their event data recorder and for the type-approval of those systems as separate technical units and amending Annex II to that Regulation
- Skjal nr.
- 32022R0545
- Orðflokkur
- no.
- Kyn
- kk.
Takk fyrir
Ábendingin verður notuð til að bæta gæði þjónustu og upplýsinga á vef Stjórnarráðsins. Hikaðu ekki við að hafa samband ef þig vantar aðstoð.
