Notað heitið ,nefnd um framfylgni´ í umfjöllun um Árósasamninginn á Samráðsgátt í ágúst 2021.
Sbr.: Ísland fullgilti í október 2011 Árósasamninginn um aðgang að upplýsingum, þátttöku almennings í ákvarðanatöku og aðgang að réttlátri málsmeðferð í umhverfismálum. Þar með varð Ísland fullgildur aðili að samningnum og því starfi sem tengist honum. Aðildarríkjaráðstefna er haldin á þriggja ára fresti þar sem teknar eru ákvarðanir um framkvæmd samningsins svo sem þróunaráætlun og vinnuáætlun. Á milli aðildarríkjaráðstefna er það skrifstofan og vinnuhópur aðildarríkja sem sjá um framkvæmd samningsins og á Ísland fulltrúa í vinnuhópnum. Auk þess eru á vettvangi samningsins reknir vinnuhópar um helstu málefni samningsins, þ.e. aðgang að upplýsingum, þátttökuréttindi almennings og aðgang að réttlátri málsmeðferð. Þá er rekin sérstök nefnd um framfylgni (Compliance Committee) sem fylgist með framkvæmd samningsins í aðildarríkjum