Hugtakasafn þýðingamiðstöðvar utanríkisráðuneytisins
Hugtakasafn : Eitt hugtak
- ÍSLENSKA
- hespun
- ENSKA
- reeling
- Svið
- tæki og iðnaður
- Dæmi
-
[is]
Silkiúrgangur (einnig púpuhýði, sem henta ekki til hespunar, garnúrgangur og forkembd textílefni) ...
- [en] Silk waste (including cocoons unsuitable for reeling, yarn waste and garnetted stock) ...
- Rit
-
[is]
Reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (EB) nr. 1013/2006 frá 14. júní 2006 um tilflutning úrgangs
- [en] Regulation (EC) No 1013/2006 of the European Parliament and of the Council of 14 June 2006 on shipments of waste
- Skjal nr.
- 32006R1013
- Athugasemd
-
Ath. að merkingin hér er sú að undan eru skilin púpuhýði sem ekki er unnt að vinda eða rekja þráð ofan af. ,Hespun´ er það að vinda þráðinn upp í hespu, sem er samofið stig í vinnsluferlinu.
Í Vöruhandbók Jóns E. Vestdals er lýsing á þessu: Þegar hinn samhangandi langi silkiþráður er rakinn ofan af kókoninum (skýr.: þ.e. púpunni), - silkið spunnið - eru 3-8 kókonar (púpur) teknir fyrir í einu. Þeir eru þá lagðir ofan í heitt vatn. Í því verður serísínið mjúkt, og límast þræðirnir af öllum 3-8 kókonunum saman í einn samfelldan þráð, sem er hespaður og þurrkaður. Er þráðurinn í hverri hespun hafður um 40.000 m að lengd, og er því rakið ofan af mörgum kókonhópum hverjum á eftir öðrum. Þessi þráður er nefndur grégé-silki (hrásilki), og er enginn snúður á honum eins og á öðru garni. ...
Hér mætti því eins (jafnvel fremur) þýða reeling sem ,það að rekja (þráð) ofan af (púpuhýði)´. - Orðflokkur
- no.
- Kyn
- kvk.
Takk fyrir
Ábendingin verður notuð til að bæta gæði þjónustu og upplýsinga á vef Stjórnarráðsins. Hikaðu ekki við að hafa samband ef þig vantar aðstoð.