Hoppa yfir valmynd

Hugtakasafn þýðingamiðstöðvar utanríkisráðuneytisins

Leitarorð Leitartungumál
Nánari leit  |  Fletting sviða

Hugtakasafn : Eitt hugtak
ÍSLENSKA
heiðursmorð
ENSKA
honour killing
Svið
lagamál
Dæmi
Lögð hefur verið áhersla á mikilvægi þess að vernda börn og ungmenni gegn hvers kyns ofbeldi en skv. skýrslum SÞ sæta milljónir barna um allan heim ofbeldi daglega. Birtingarmyndir þess eru margvíslegar, svo sem kynferðislegt ofbeldi, vanræksla, pyntingar, vinnuþrælkun, misnotkun og skaðlegar hefðir (t.d. kynfæralimlesting, nauðungarhjónabönd og heiðursmorð). Skýrslur SÞ sýna glöggt að ofbeldi gegn börnum er oft falið og viðgengst í skjóli þagnarinnar. Á fundi mannréttindaráðs SÞ í mars 2010 studdi Ísland að hafin yrði gerð valfrjálsrar bókunar, sem fæli í sér kæruleið, við samning SÞ um réttindi barnsins.


Skilgreining
sæmdarglæpur:

ofbeldi gegn konu sem beinist gegn lífi hennar og beitt er af karlmanni úr fjölskyldu hennar sem refsingu af hálfu fjölskyldunnar sökum skammar sem konan hefur leitt yfir hana, t.d. með því að hafa framið hjúskaparbrot eða eignast barn utan hjónabands, eða jafnvel vegna þess að konan hefur orðið þolandi nauðgunar eða sifjaspells. Einnig kann að vera næg ástæða að konan eigi í ástarsambandi sem ekki er fjölskyldunni þóknanlegt. Með s. er þá álitið af sumum að heiðri fjölskyldunnar sé borgið. S. eru vel þekktir meðal marga þjóða í þróunarríkjum, þar sem þeir eru sums staðar á mörkum þess að vera refsiverðir, og einnig þekkjast þeir í sumum samfélögum innflytjenda í vestrænum ríkjum, þar sem fyrrnefndur tilgangur með glæpnum gegn konunni er ekki metinn gerandanum til refsimildunar

(Lögfræðiorðabók. Ritstj. Páll Sigurðsson. Bókaútg. CODEX - Lagastofnun HÍ. Reykjavík, 2008.)


Rit
Gagnasafn þýðingamiðstöðvar
Orðflokkur
no.
Kyn
hk.
ÍSLENSKA annar ritháttur
sæmdarmorð
sæmdarglæpur
ENSKA annar ritháttur
honor killing
shame killing

Var efnið hjálplegt?Nei
Takk fyrir

Ábendingin verður notuð til að bæta gæði þjónustu og upplýsinga á vef Stjórnarráðsins. Hikaðu ekki við að hafa samband ef þig vantar aðstoð.

Af hverju ekki?

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum

Vefurinn notar vefkökur til að bæta upplifun notenda og greina umferð um vefinn. Lesa meira