Hoppa yfir valmynd

Hugtakasafn þýðingamiðstöðvar utanríkisráðuneytisins

Leitarorð Leitartungumál
Nánari leit  |  Fletting sviða

Hugtakasafn : Eitt hugtak
ÍSLENSKA
Uppbyggingarsjóður EES
ENSKA
EEA Grants
Samheiti
[is] fjármagnskerfi EES
[en] EEA Financial Mechanism
Svið
sjóðir og áætlanir
Dæmi
[is] ... munu aðilarnir efla samstarf milli pólskra og íslenskra ungmenna, kennara, skólastarfsfólks, skóla og menntastofnana innan ramma áætlana Evrópusambandsins og Uppbyggingarsjóðs EES, ...

[en] The Parties will enhance cooperation of Polish and Icelandic youth, teachers, school staff, schools and educational institutions in the framework of European Union programmes and EEA Grants.

Rit
[is] Yfirlýsing milli menntamálaráðherra Lýðveldisins Póllands og mennta- og menningarmálaráðherra Íslands um samstarf á sviði menntamála

[en] Declaration between the Minister of National Education of the Republic of Poland and the Minister of Education, Science and Culture of Iceland on cooperation in the field of education

Skjal nr.
UÞM2020020020
Athugasemd
Styrkir EFTA-ríkja innan Evrópska efnahagssvæðissins til uppbyggingar í nýjum aðildarríkjum hafa verið veittir frá 1994 skv. áætlunum sem taka til nokkurra ára í senn. Formleg heiti sjóðanna sem hér eiga hlut að máli hafa tekið breytingum á milli tímabila. Sem dæmi má nefna ,Financial mechanism´ og ,Financial instrument´. Sjóðurinn er nú kynntur almenningi undir heitinu ,EEA Grants´ á ensku (,EEA and Norway Grants´ ef vísað er í báða sjóði). Á íslensku var upphaflega talað um ,þróunarsjóð(i)´, en því hætt til að forðast þann misskilning að um ,þróunaraðstoð´ væri að ræða. Síðan hét þetta ,fjármagnskerfi´ (fram til 1. maí 2014) en nú ,uppbyggingarsjóðir´ vegna skyldleika sjóðanna við hlutverk og fyrirkomulag uppbyggingarsjóða ESB (,EU Structural Funds´). Sjá aðrar færslur með ,financial mechanism´og vefsíðuna http://eeagrants.org.

Aðalorð
uppbyggingarsjóður - orðflokkur no. kyn kk.

Var efnið hjálplegt?Nei
Takk fyrir

Ábendingin verður notuð til að bæta gæði þjónustu og upplýsinga á vef Stjórnarráðsins. Hikaðu ekki við að hafa samband ef þig vantar aðstoð.

Af hverju ekki?

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum

Vefurinn notar vefkökur til að bæta upplifun notenda og greina umferð um vefinn. Lesa meira