Hugtakasafn þýðingamiðstöðvar utanríkisráðuneytisins
Hugtakasafn : Eitt hugtak
- ÍSLENSKA
- haftengdur hagvöxtur
- ENSKA
- maritime growth
- Svið
- sjóðir og áætlanir
- Dæmi
-
[is]
Efling sjálfbærs haftengds hagvaxtar til lengri tíma litið og sköpun samlegðaráhrifa á öllum sviðum sem tengjast hafinu krefst samþættrar nálgunar. Rannsóknastarfsemi verður með áherslu á varðveislu sjávarumhverfis og á þau áhrif sem haftengd starfsemi og framleiðsluvörur hafa á svið sem tengjast ekki hafinu.
- [en] Boosting long-term, sustainable maritime growth and creating synergies across all maritime sectors requires an integrated approach. Research activities will focus on preserving the marine environment as well as on the impact of maritime activities and products on non-maritime sectors.
- Rit
-
[is]
Ákvörðun ráðsins frá 3. desember 2013 um að koma á fót séráætlun um framkvæmd Horizon 2020 - rammaáætlunar um rannsóknir og nýsköpun (2014-2020) og um niðurfellingu á ákvörðunum 2006/971/EB, 2006/972/EB, 2006/973/EB, 2006/974/EB og 2006/975/EB
- [en] Council Decision of 3 December 2013 establishing the specific programme implementing Horizon 2020 - the Framework Programme for Research and Innovation (2014-2020) and repealing Decisions 2006/971/EC, 2006/972/EC, 2006/973/EC, 2006/974/EC and 2006/975/EC
- Skjal nr.
- 32013D0743
- Athugasemd
-
Lýsingarorðið ,maritime´ er að sjálfsögðu þýtt á marga vegu eftir samhengi en oft getur verið um að ræða siglingamál (þýtt sem siglinga-), t.d. ef í dönsku er talað um , søfart-´. Ef hins vegar ekki er víst að um siglingar sé að ræða eingöngu, heldur e.t.v. e-ð víðara, þá er talið óhætt að nota lýsingarorðið ,haftengdur´ eins og gert er hér. Ath. þó samhengi. Sjá fleiri færslur með ,maritime´.
- Aðalorð
- hagvöxtur - orðflokkur no. kyn kk.
Takk fyrir
Ábendingin verður notuð til að bæta gæði þjónustu og upplýsinga á vef Stjórnarráðsins. Hikaðu ekki við að hafa samband ef þig vantar aðstoð.