Hugtakasafn þýðingamiðstöðvar utanríkisráðuneytisins
Hugtakasafn : Eitt hugtak
- ÍSLENSKA
- starfshópur
- ENSKA
- working group
- Samheiti
- vinnuhópur
- Svið
- hugtak, almennt notað í EB-/ESB-textum
- Dæmi
-
[is]
Samstarfsvettvangurinn ætti að geta komið á fót starfshópum til að rannsaka tiltekin málefni og ætti að geta treyst á sérfræðiþekkingu fagmanna með sérþekkingu á tilteknum sviðum.
- [en] The Platform should be able to establish working groups to examine specific issues and should be able to rely on the expertise of professionals with specific competence.
- Rit
-
[is]
Ákvörðun Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) 2016/344 frá 9. mars 2016 um að koma á fót evrópskum vettvangi til að efla samstarf við að taka á svartri vinnu
- [en] Decision (EU) 2016/344 of the European Parliament and of the Council of 9 March 2016 on establishing a European Platform to enhance cooperation in tackling undeclared work
- Skjal nr.
- 32016D0344
- Athugasemd
-
Mörg dæmi eru um hvort tveggja ,vinnuhópa´ og ,starfshópa´ og telst hvort tveggja rétt. Enginn sérstakur merkingarmunur virðist vera á þessum orðum heldur ræðst notkun þeirra af venju í hverju tilfelli. Vinnuhópur virðist þó vera algengara í skjölum utanríkisráðuneytisins.
- Orðflokkur
- no.
- Kyn
- kk.
Takk fyrir
Ábendingin verður notuð til að bæta gæði þjónustu og upplýsinga á vef Stjórnarráðsins. Hikaðu ekki við að hafa samband ef þig vantar aðstoð.