Hugtakasafn þýðingamiðstöðvar utanríkisráðuneytisins
Hugtakasafn : Eitt hugtak
- ÍSLENSKA
- greiðslufallsáhætta mótaðila
- ENSKA
- counterparty credit risk
- Svið
- fjármál
- Dæmi
-
[is]
Þegar ákveðið er hvaða flokkar OTC-afleiðusamninga skulu falla undir stöðustofnunarskylduna skal Evrópska eftirlitsstofnunin á verðbréfamarkaði einnig taka tilhlýðilegt tillit til annarra viðeigandi sjónarmiða, umfram allt samtenginga milli mótaðila sem nota viðkomandi flokka OTC-afleiðusamninga og áhrif á umfang greiðslufallsáhættu mótaðila auk þess að hvetja til jafnra samkeppnisskilyrða á innri markaðnum eins og um getur í d-lið 5. mgr. 1. gr. í reglugerð (ESB) nr. 1095/2010.
- [en] When determining which classes of OTC derivative contracts are to be subject to the clearing obligation, ESMA should also pay due regard to other relevant considerations, most importantly the interconnectedness between counterparties using the relevant classes of OTC derivative contracts and the impact on the levels of counterparty credit risk as well as promote equal conditions of competition within the internal market as referred to in Article 1(5)(d) of Regulation (EU) No 1095/2010.
- Skilgreining
-
[is]
hættan á því að mótaðili að viðskiptum lendi í vanskilum fyrir peningalegt lokauppgjör viðskiptanna
- [en] the risk that the counterparty to a transaction defaults before the final settlement of the transactions cash flows
- Rit
-
[is]
Reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) nr. 648/2012 frá 4. júlí 2012 um OTC-afleiður, miðlæga mótaðila og afleiðuviðskiptaskrár
- [en] Regulation (EU) No 648/2012 of the European Parliament and of the Council of 4 July 2012 on OTC derivatives, central counterparties and trade repositories EMIR
- Skjal nr.
- 32012R0648
- Athugasemd
-
Þýðing færð inn að tillögu samráðshóps fjármálaráðuneytisins, Fjármálaeftirlitsins, Seðlabankans, Samtaka fjármálafyrirtækja og Samtaka fjárfesta (2014)
Rétt er að þýða ,credit risk´ og orðasambönd leidd af því eftir samhengi. Hér fer skýring sérfr. hjá FME: Samhengisins vegna teljum við eðlilegt að counterparty credit risk sé þýtt sem útlánaáhætta mótaðila í 32013R575 en greiðslufallsáhætta mótaðila í 32012R0648. Í fyrsta lagi vegna þess að það er næst því að vera orðrétt þýðing í 32013R0575 og við höfum hingað til stuðst við það hugtak. Í öðru lagi út af því að samhengið er m.a. það að undir counterparty credit risk í 575 er verið að reikna svokallað útlánaígildi vegna afleiðusamninga. Það gildi er svo notað til að ákvarða eiginfjárkröfur vegna þessara afleiðna í samræmi við ákvæðin í CRR.
Í orðasambandinu counterparty credit risk er m.ö.o. í raun ekki verið að fást við lánveitingar, hvorki í 575 eða 648, heldur mótaðilaáhættu afleiðusamninga sem reiknaðir yfir í útlánaígildi. Það eru samt tengsl milli útlánaáhættu (credit risk) kaflans í CRR og þessa counterparty credit risk út af þessum útlánaígildi. Það eru engin tengsl við útlán eða nokkuð tengt lánveitingum í 648, heldur gagnsæi og uppgjör m.t.t. afleiðuviðskipta. Því er eðlilegra að tala um greiðslufallsáhættu mótaðila í 648, en útlánaáhættu mótaðila í 575. - Aðalorð
- greiðslufallsáhætta - orðflokkur no. kyn kvk.
- ENSKA annar ritháttur
- CCR
Takk fyrir
Ábendingin verður notuð til að bæta gæði þjónustu og upplýsinga á vef Stjórnarráðsins. Hikaðu ekki við að hafa samband ef þig vantar aðstoð.