Hugtakasafn þýðingamiðstöðvar utanríkisráðuneytisins
Hugtakasafn : Eitt hugtak
- ÍSLENSKA
- rófa
- ENSKA
- tail
- DANSKA
- hale
- SÆNSKA
- svans
- FRANSKA
- queue
- ÞÝSKA
- Schwanz, Schweif
- Svið
- landbúnaður
- Dæmi
-
[is]
... þegar um er að ræða önnur dýr: hausbein, fætur, rófu, lærlegg, sköflung, dálk, upphandleggsbein, geislabein og öln.
- [en] ... for other animals, the bones of the head, feet, tails, femur, tibia, fibula, humerus, radius and ulna.
- Skilgreining
-
líkamshluti sem er neðsti eða aftasti hluti bolsins hjá hryggdýrum, framhald hryggjarins; ber mismunandi heiti í íslensku eftir dýrum, t.d. rófa (einnig skott) á hundi, skott á ref, hali á nautgripum, tagl á hestum, dyndill (dindill) á sauðfé, rófa eða hali á svínum, stél á fuglum, stirtla (sporður) á fiskum
- Rit
-
[is]
Reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (EB) nr. 853/2004 frá 29. apríl 2004 um sérstakar reglur um hollustuhætti sem varða matvæli úr dýraríkinu
- [en] Regulation (EC) No 853/2004 of the European Parliament and of the Council of 29 April 2004 laying down specific hygiene rules for food of animal origin
- Skjal nr.
- 32004R0853
- Athugasemd
-
Í Fiskunum (útg. 1926) segir Bjarni Sæmundsson m.a. í lýsingu sinni á fiskum almennt:
,,Bolurinn er tíðast stuttur, en rófan eða stirtlan, eins og hún er tíðast nefnd á fiskunum, löng og engin greinileg takmörk milli hennar og bolsins, hvorki að utan né innan. Hún samsvarar rófunni á öðrum hryggdýrum og er tíðast vöðvamikil, sívöl eða þunnvaxin, eftir því sem bolurinn er það, eða þynnist aftur á við.´´
,Rófan´ er því aðalheitið á þessum líkamshluta dýra (sbr. rófubein á mönnum) og nær því yfir hala, dindil, skott, tagl, sporð/stirtlu o.s.frv. og ber að nota það orð (þ.e. rófu) ef um víðustu merkingu orðsins er að ræða. - Orðflokkur
- no.
- Kyn
- kvk.
Takk fyrir
Ábendingin verður notuð til að bæta gæði þjónustu og upplýsinga á vef Stjórnarráðsins. Hikaðu ekki við að hafa samband ef þig vantar aðstoð.