Hugtakasafn þýðingamiðstöðvar utanríkisráðuneytisins
Hugtakasafn : Eitt hugtak
- ÍSLENSKA
- prímati sem ekki er af ættkvísl manna
- ENSKA
- non-human primate
- Svið
- landbúnaður (dýraheiti)
- Dæmi
-
[is]
Vegna erfðafræðilegs skyldleika prímata við menn og háþróaðrar félagshæfni þeirra vekur notkun á prímötum, sem ekki eru af ættkvísl manna, í vísindalegum tilraunum upp sérstök siðfræðileg og raunhæf vandamál að því er varðar að uppfylla atferlisfræðilegar, umhverfislegar og félagslegar þarfir þeirra í rannsóknarstofuumhverfi.
- [en] Due to their genetic proximity to human beings and to their highly developed social skills, the use of non-human primates in scientific procedures raises specific ethical and practical problems in terms of meeting their behavioural, environmental and social needs in a laboratory environment.
- Skilgreining
-
dýr af ættbálkinum Primates, önnur en þau sem eru af ættkvíslinni Homo, þ.e. forapar, dýrapar og mannapar
- Rit
-
[is]
Tilskipun Evrópuþingsins og ráðsins 2010/63/ESB frá 22. september 2010 um vernd dýra sem eru notuð í vísindaskyni
- [en] Directive 2010/63/EU of the European Parliament and of the Council of 22 September 2010 on the protection of animals used for scientific purposes
- Skjal nr.
- 32010R0063
- Athugasemd
-
Stundum er erfitt að koma fyrir hugtakinu ,prímati, annar en maður´ í setningum án þess að óheppileg aukamerking myndist og þá er hægt að nota ,prímati sem ekki er af ættkvísl manna´. Einnig má sjá þýðinguna ,ómennskur prímati´ á Netinu. ,Fremdardýr´ er annað ísl. heiti á prímötum.
- Aðalorð
- prímati - orðflokkur no. kyn kk.
- ÍSLENSKA annar ritháttur
- prímati, annar en maður
Takk fyrir
Ábendingin verður notuð til að bæta gæði þjónustu og upplýsinga á vef Stjórnarráðsins. Hikaðu ekki við að hafa samband ef þig vantar aðstoð.