Hugtakasafn þýðingamiðstöðvar utanríkisráðuneytisins
Hugtakasafn : Eitt hugtak
- ÍSLENSKA
- marglaga fjölefni
- ENSKA
- multi-material multi-layer
- Svið
- íðefni
- Dæmi
-
[is]
Á undanförnum árum hafa verið þróaðir efniviður og hlutir, sem komast í snertingu við matvæli og samanstanda af blöndu margra efna, í því skyni að ná sem bestri virkni og vernda matvælin sem best og draga um leið úr umbúðaúrgangi. Plastlög í þennan efnivið og hluti úr marglaga fjölefni skulu uppfylla sömu kröfur um samsetningu og gilda um plastlög sem eru ekki sett saman við önnur efni. Plastlög í marglaga fjölefni, sem eru aðskilin frá matvælunum með virkum tálma, falla undir hugtakið um virka tálma.
- [en] In recent years food contact materials and articles are being developed that consist of a combination of several materials to achieve optimum functionality and protection of the food while reducing packaging waste. In these multi-material multi-layer materials and articles plastic layers should comply with the same compositional requirements as plastic layers which are not combined with other materials. For plastic layers in a multi-material multi-layer which are separated from the food by a functional barrier the functional barrier concept should apply.
- Skilgreining
-
efniviður eða hlutur sem er settur saman úr tveimur eða fleiri lögum af mismunandi tegundum efniviðar, þar af a.m.k. einu lagi úr plasti
- Rit
-
[is]
Reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) nr. 10/2011 frá 14. janúar 2011 um efnivið og hluti úr plasti sem ætlað er að komast í snertingu við matvæli
- [en] Commission Regulation (EU) No 10/2011 of 14 January 2011 on plastic materials and articles intended to come into contact with food
- Skjal nr.
- 32011R0010
- Athugasemd
-
Fjölefni er hannaður og framleiddur, misleitur efnisþáttur eða efnishluti sem ekki verður skilgreindur með einni efnasamsetningu og virðist líka geta haft tvívíða eða þrívíða byggingu. Viðbótarmerkingin (multi-layer) er sú að hægt er að stafla enn öðrum efnum eða fleiri slíkum efnisþáttum í lög.
- Aðalorð
- fjölefni - orðflokkur no. kyn hk.
Takk fyrir
Ábendingin verður notuð til að bæta gæði þjónustu og upplýsinga á vef Stjórnarráðsins. Hikaðu ekki við að hafa samband ef þig vantar aðstoð.