Hugtakasafn þýðingamiðstöðvar utanríkisráðuneytisins
Hugtakasafn : Eitt hugtak
- ÍSLENSKA
- kælilausn
- ENSKA
- cooling solution
- Svið
- íðefni
- Dæmi
-
[is]
Sexgilt króm sem tæringarvarnarefni í kolstálskælikerfinu í ísogskælum upp að 0,75%, miðað við þyngd, í kælilausninni
- [en] Hexavalent chromium as an anticorrosion agent of the carbon steel cooling system in absorption refrigerators up to 0,75 % by weight in the cooling solution
- Rit
-
[is]
Ákvörðun framkvæmdastjórnarinnar frá 24. september 2010 um breytingu á viðaukanum við tilskipun Evrópuþingsins og ráðsins 2002/95/EB, að því er varðar undanþágur varðandi búnað sem inniheldur blý, kvikasilfur, kadmíum, sexgilt króm, fjölbrómuð bífenýl eða fjölbrómaða dífenýletera, í því skyni að laga viðaukann að framförum á sviði vísinda og tækni
- [en] Commission Decision of 24 September 2010 amending, for the purposes of adapting to scientific and technical progress, the Annex to Directive 2002/95/EC of the European Parliament and of the Council as regards exemptions for applications containing lead, mercury, cadmium, hexavalent chromium, polybrominated biphenyls or polybrominated diphenyl ethers
- Skjal nr.
- 32010D0571
- Athugasemd
-
Það er eiginleiki ísogskælikerfa að rokgjarn vökvi (ammoníak) er ísogaður í burðarvökvann (vatn) svo að úr verður sterk (ammoníaks-)lausn. Burðarvökvanum með hinum ísogaða, rokgjarna vökva er síðan dælt upp í háan þrýsting. (Dæling á ósamþjappanlegum vökva krefst lítillar vinnu, þjöppun á gasi mjög mikillar. Það þyrfti miku meiri vinnu til að þjappa hinum rokgjarna vökva/gufu einum og sér ef hann væri ekki ísogaður í burðarvökvann.) Kælilausnin er síðan hituð við hinn háa þrýsting þannig að rokgjarni vökvinn skilst frá burðarvökvanum sem gas. Það er síðan kælt þannig að rokgjarna gasið þéttist í vökva sem síðan má nota í uppgufara kælikerfis þar sem vökvinn sýður við lágan þrýsting og lágan hita, alveg eins og í þjöppukælikerfi. Gufan er síðan ísoguð í burðarvökvann við lága þrýstinginn.
- Orðflokkur
- no.
- Kyn
- kvk.
Takk fyrir
Ábendingin verður notuð til að bæta gæði þjónustu og upplýsinga á vef Stjórnarráðsins. Hikaðu ekki við að hafa samband ef þig vantar aðstoð.