Hugtakasafn þýðingamiðstöðvar utanríkisráðuneytisins
Hugtakasafn : Eitt hugtak
- ÍSLENSKA
- meðalhófsreglan
- ENSKA
- principle of proportionality
- Svið
- lagamál
- Dæmi
-
[is]
HINIR HÁU SAMNINGSAÐILAR
... SEM EINSETJA SÉR að setja skilyrði fyrir beitingu nálægðarreglunnar og meðalhófsreglunnar, sem mælt er fyrir um í 5. gr. sáttmálans um Evrópusambandið, og koma á kerfi eftirlits með beitingu þessara meginreglna, ... - [en] THE HIGH CONTRACTING PARTIES,
... RESOLVED to establish the conditions for the application of the principles of subsidiarity and proportionality, as laid down in Article 5 of the Treaty on European Union, and to establish a system for monitoring the application of those principles, ... - Skilgreining
-
ein af grundvallarreglum stjórnsýsluréttar sem felur m.a. í sér að stjórnvöld verða að gæta hófs við meðferð valds síns og er ekki aðeins skylt að líta til þess markmiðs sem starf þeirra stefnir að heldur ber þeim einnig að taka tillit til hagsmuna og réttinda þeirra sem valdbeitingin beinist að. Í m. felast þrír þættir: Í fyrsta lagi verður íþyngjandi ákvörðun sem stjórnvald tekur að vera markhæf, þ.e. hún verður að vera til þess fallin að ná því markmiði sem að er stefnt. Í öðru lagi ber að velja það úrræði sem vægast er þegar völ er fleiri úrræða sem þjónað geta því markmiði sem að er stefnt. Í þriðja lagi verður að vera hóf í beitingu þess úrræðis sem valið hefur verið og má ekki ganga lengra en nauðsyn ber til. Sé t.d. fleiri úrræða völ skal velja það úrræði sem vægast er ...
(Lögfræðiorðabók. Ritstj. Páll Sigurðsson. Bókaútg. CODEX - Lagastofnun HÍ. Reykjavík, 2008.) - Rit
-
[is]
SAMSTEYPT ÚTGÁFA SÁTTMÁLANS UM EVRÓPUSAMBANDIÐ
- [en] CONSOLIDATED VERSION OF THE TREATY ON EUROPEAN UNION
- Skjal nr.
- Lissabon, bókun 2
- Athugasemd
-
,Meðalhófsreglan´ er ein af grundvallarreglum ESB-réttar.
Sjá einnig skilgreiningu í íslenskum lögum, sbr. 12. gr. stjórnsýslulaga nr. 37/1993: Stjórnvald skal því aðeins taka íþyngjandi ákvörðun þegar lögmætu markmiði, sem að er stefnt, verður ekki náð með öðru og vægara móti. Skal þess þá gætt að ekki sé farið strangar í sakirnar en nauðsyn ber til. - Orðflokkur
- no.
- Kyn
- kvk.
- ÍSLENSKA annar ritháttur
- meginreglan um meðalhóf
- ENSKA annar ritháttur
- proportionality principle
Takk fyrir
Ábendingin verður notuð til að bæta gæði þjónustu og upplýsinga á vef Stjórnarráðsins. Hikaðu ekki við að hafa samband ef þig vantar aðstoð.