Hugtakasafn þýðingamiðstöðvar utanríkisráðuneytisins
Hugtakasafn : Eitt hugtak
- ÍSLENSKA
- landsbundin reglugerð
- ENSKA
- national regulation
- Svið
- lagamál
- Dæmi
-
[is]
Þau aðildarríki, þar sem kveðið er á um í reglugerðum, sem þegar voru fyrir hendi 8. júlí 2010, enn meiri lækkun á einingarverði en gert er í markmiðunum sem ná til alls Sambandsins og sett eru í samræmi við reglugerð (ESB) nr. 691/2010, geta veitt veitendum flugleiðsöguþjónustu undanþágu frá ákvæðum 3. mgr. 11. gr. a í reglugerð (EB) nr. 1794/2006. Þessi undanþága skal gilda á tímabilinu þegar einingarverð er lækkað samkvæmt landsbundnum reglugerðum en skal ekki gilda lengur en til loka fyrsta viðmiðunartímabilsins árið 2014. Aðildarríkin skulu tilkynna framkvæmdastjórninni og Evrópustofnuninni um öryggi flugleiðsögu um slíkar undanþágur.
- [en] Those Member States with national regulations which existed prior to 8 July 2010 that establish a reduction on the unit rate beyond the Union-wide targets established in accordance with Regulation (EU) No 691/2010 may exempt their air navigation service providers from Article 11a (3) of Regulation (EC) No 1794/2006. That exemption shall apply for the period where the national regulations reduce the unit rate, but shall not extend beyond the end of the first reference period in 2014. Member States shall inform the Commission and Eurocontrol of such exemptions.
- Rit
-
[is]
Reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) nr. 1191/2010 frá 16. desember 2010 um breytingu á reglugerð (EB) nr. 1794/2006 um sameiginlegt gjaldtökukerfi fyrir flugleiðsöguþjónustu
- [en] Commission Regulation (EU) No 1191/2010 of 16 December 2010 amending Regulation (EC) No 1794/2006 laying down a common charging scheme for air navigation services
- Skjal nr.
- 32010R1191
- Athugasemd
-
Eingöngu er hægt að nota þýðinguna ,innlendur´ þegar skýrt er að vísað er til ákveðins lands eða ríkis. Þegar ekki er ljóst um hvaða land er að ræða eða vísað er til margra ríkja í senn, t.d. allra aðildarríkja Evrópusambandsins, er mælt með þýðingunni ,landsbundinn´ eða ,í hverju aðildarríki´ en í sumum tilvikum fer vel á því að nota forliðinn ,lands-´.
- Aðalorð
- reglugerð - orðflokkur no. kyn kvk.
Takk fyrir
Ábendingin verður notuð til að bæta gæði þjónustu og upplýsinga á vef Stjórnarráðsins. Hikaðu ekki við að hafa samband ef þig vantar aðstoð.