Hugtakasafn þýðingamiðstöðvar utanríkisráðuneytisins
Hugtakasafn : Eitt hugtak
- ÍSLENSKA
- gáleysi
- ENSKA
- negligence
- Svið
- lagamál
- Dæmi
-
[is]
Flugfélög í Bandalaginu ættu ekki að geta borið fyrir sig 2. mgr. 21. gr. Montreal-samningsins nema þau geti sannað að tjónið hafi ekki orðið vegna gáleysis, óréttmætra aðgerða eða vanrækslu flugfélagsins, starfsmanna þess eða fulltrúa.
- [en] The Community air carrier should not be able to avail itself of Article 21(2) of the Montreal Convention unless it proves that the damage was not due to the negligence or other wrongful act or omission of the carrier or its servants or agents.
- Skilgreining
-
gáleysi:
1 (í refsirétti) það að hinn brotlegi álítur eða hefur hugboð um að refsinæm afleiðing verknaðar kunni að koma fram, eða hann hefur hugboð um að aðrir refsinæmir þættir verknaðarlýsingar kunni að vera fyrir hendi, en hann vinnur verkið í trausti þess að afleiðingin komi ekki fram eða að hugboðið reynist ekki rétt. Það er enn fremur g. ef hinn brotlegi, sem gegn og skynsamur maður, hefði átt að gera sér grein fyrir nefndum aðstæðum og bregðast við í samræmi við þær, en hefur hins vegar ekki gætt þeirrar varkárni sem af honum mátti ætlast
2 (í skaðabótarétti) sú huglæga afstaða manns sem felst í vilja hans. Tjóni er valdið af g. ef sú háttsemi tjónvalds hefur, vegna þess að hann hefur ekki sýnt þá varkárni sem ætlast má til af honum, vikið frá því sem telja má viðurkennda háttsemi samkvæmt því sem ákveðið er í lögum, fordæmum, venju eða eftir öðrum viðmiðunum í skaðabótarétti
almennt gáleysi: aðgæsluleysi á tilteknu stigi. A., sem einnig er nefnt einfalt gáleysi, er lægra stig gáleysis. Hins vegar stórfellt gáleysi
(Lögfræðiorðabók. Ritstj. Páll Sigurðsson. Bókaútg. CODEX - Lagastofnun HÍ. Reykjavík, 2008.) - Rit
-
[is]
Reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (EB) nr. 889/2002 frá 13. maí 2002 um breytingu á reglugerð ráðsins (EB) nr. 2027/97 um bótaábyrgð flugfélaga vegna slysa
- [en] Regulation (EC) No 889/2002 of the European Parliament and of the Council of 13 May 2002 amending Council Regulation (EC) No 2027/97 on air carrier liabilty in the event of accidents
- Skjal nr.
- 32002R0889
- Athugasemd
-
,Gáleysi´ er í íslenskum rétti flokkað í ,almennt gáleysi´, samh. einfalt gáleysi, (e. negligence) annars vegar og ,vítavert gáleysi´, samh. stórfellt gáleysi, stórkostlegt gáleysi, (e. gross negligence) hins vegar. ,Minni háttar gáleysi´ (e. slight negligence) er lægra stig gáleysis en ,almennt gáleysi´.
- Orðflokkur
- no.
- Kyn
- hk.
- ÍSLENSKA annar ritháttur
- almennt gáleysi
einfalt gáleysi
Takk fyrir
Ábendingin verður notuð til að bæta gæði þjónustu og upplýsinga á vef Stjórnarráðsins. Hikaðu ekki við að hafa samband ef þig vantar aðstoð.