Hugtakasafn þýðingamiðstöðvar utanríkisráðuneytisins
Hugtakasafn : Eitt hugtak
- ÍSLENSKA
- lýðræði
- ENSKA
- democracy
- Svið
- lagamál
- Dæmi
-
[is]
...hefur hugfast að menningarleg fjölbreytni, sem blómstrar þar sem lýðræði, umburðarlyndi, félagslegt réttlæti og gagnkvæm virðing ríkir meðal þjóðflokka og menningarsamfélaga, er ómissandi forsenda friðar og öryggis á staðbundnum, innlendum og alþjóðlegum vettvangi, ...
- [en] Recalling that cultural diversity, flourishing within a framework of democracy, tolerance, social justice and mutual respect between peoples and cultures, is indispensable for peace and security at the local, national and international levels, ...
- Skilgreining
-
stjórnarfar (stjórnskipun) þar sem almenningur getur með (leynilegum) kosningum haft úrslitavald í stjórnarfarsefnum; þar sem einstaklingar og hópar hafa rétt og aðstöðu til að láta í ljós vilja sinn og hafa áhrif á samfélagsleg málefni. Íslensk stjórnskipun er lýðræðisleg en í því felst að borgararnir kjósa æðstu valdhafana, þ.e. þá sem fara með löggjafarvald og æðsta framkvæmdarvald til ákveðins tíma og kosningar eru leynilegar. Greint er á milli fulltrúalýðræðis þar sem borgarar kjósa fulltrúa sína til að taka ákvarðanir um stjórn ríkisins og sameiginlega hagsmuni þjóðarinnar og beins lýðræðis þar sem borgarar taka slíkar ákvarðanir sjálfir, t.d. í þjóðaratkvæðagreiðslu
(Lögfræðiorðabók. Ritstj. Páll Sigurðsson. Bókaútg. CODEX - Lagastofnun HÍ. Reykjavík, 2008.) - Rit
-
[is]
Samningur um að styðja við fjölbreytileg menningarleg tjáningarform, 20.10.2005
- [en] Convention on the Protection and Promotion of the Diversity of Cultural Expressions
- Skjal nr.
- M06Smenfjol_isl_loka
- Orðflokkur
- no.
- Kyn
- hk.
Takk fyrir
Ábendingin verður notuð til að bæta gæði þjónustu og upplýsinga á vef Stjórnarráðsins. Hikaðu ekki við að hafa samband ef þig vantar aðstoð.