Hoppa yfir valmynd

Hugtakasafn þýðingamiðstöðvar utanríkisráðuneytisins

Leitarorð Leitartungumál
Nánari leit  |  Fletting sviða

Hugtakasafn : Eitt hugtak
ÍSLENSKA
lagagerningur
ENSKA
legal instrument
Svið
lagamál
Dæmi
[is] Upptaka evrunnar hefur í för með sér breytingar á peningamálalöggjöf hvers aðildarríkis; viðurkenning á peningamálalöggjöf ríkis er alþjóðlega viðurkennd meginregla; ótvíræð staðfesting á meginreglunni um samfellu ætti að leiða til þess að samfella samninga og annarra lagagerninga verði viðurkennd í lögsögu þriðju landa.

[en] Whereas the introduction of the euro constitutes a change in the monetary law of each participating Member State; whereas the recognition of the monetary law of a State is a universally accepted principle; whereas the explicit confirmation of the principle of continuity should lead to the recognition of continuity of contracts and other legal instruments in the jurisdictions of third countries;

Rit
[is] Reglugerð ráðsins (EB) nr. 1103/97 frá 17. júní 1997 um tiltekin ákvæði er varða upptöku evrunnar

[en] Council Regulation (EC) No 1103/97 of 17 June 1997 on certain provisions relating to the introduction of the euro

Skjal nr.
31997R1103
Athugasemd
Ath. að legal instrument (ísl. lagagerningur) í Evrópurétti hefur mun víðari skírskotun en löggerningur í ísl. rétti, sbr. eftirfarandi skilgreiningu úr reglugerð um upptöku evrunnar (31998R0974):
lagagerningur: laga- og stjórnsýsluákvæði, stjórnvaldsákvarðanir, dómsniðurstöður, samningar, einhliða lagagerningar, greiðslumiðlar aðrir en seðlar og mynt, og aðrir gerningar sem hafa réttaráhrif
(e. ''legal instruments` shall mean legislative and statutory provisions, acts of administration, judicial decisions, contracts, unilateral legal acts, payment instruments other than banknotes and coins, and other instruments with legal effect).

Sjá einnig legislative instrument.

Orðmyndin gjörningur var töluvert notuð hér áður fyrr hjá þýðingamiðstöð, t.d. í milliríkjasamningum.

Orðflokkur
no.
Kyn
kk.

Var efnið hjálplegt?Nei
Takk fyrir

Ábendingin verður notuð til að bæta gæði þjónustu og upplýsinga á vef Stjórnarráðsins. Hikaðu ekki við að hafa samband ef þig vantar aðstoð.

Af hverju ekki?

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum

Vefurinn notar vefkökur til að bæta upplifun notenda og greina umferð um vefinn. Lesa meira