Hugtakasafn þýðingamiðstöðvar utanríkisráðuneytisins
Hugtakasafn : Eitt hugtak
- ÍSLENSKA
- dómsvald
- ENSKA
- jurisdiction
- Svið
- lagamál
- Dæmi
-
[is]
Rétt er að það komi skýrt fram að reglufestar kröfur þessarar tilskipunar um vernd gegn ógjaldfærni og upplýsingar í tengslum við samtengda ferðatilhögun ættu einnig að gilda um seljendur sem hafa ekki staðfestu í aðildarríki en sem með einhverjum hætti beina starfsemi sinni, í skilningi reglugerðar (EB) nr. 593/2008 og reglugerðar Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) nr. 1215/2012 (14), til eins eða fleiri aðildarríkja.
Reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) nr. 1215/2012 frá 12. desember 2012 um dómsvald og viðurkenningu á og fullnustu dóma í einkamálum og viðskiptamálum (Stjtíð. ESB L 351, 20.12.2012, bls. 1). - [en] It should be clarified that the regulatory requirements of this Directive on insolvency protection and information in relation to linked travel arrangements should also apply to traders not established in a Member State which by any means direct their activities within the meaning of Regulation (EC) No 593/2008 and Regulation (EU) No 1215/2012 of the European Parliament and of the Council(14) to one or more Member States.
Regulation (EU) No 1215/2012 of the European Parliament and of the Council of 12 December 2012 on jurisdiction and the recognition and enforcement of judgments in civil and commercial matters (OJ L 351, 20.12.2012, p. 1). - Skilgreining
-
einn af þremur þáttum ríkisvaldsins. Í d. felst vald til að leysa endanlega úr ágreiningi um réttindi manna og skyldur, með þeim afleiðingum að fylgja megi úrlausninni eftir með valdbeitingu, svo og vald til að kveða á um hvort maður hefur gerst sekur um refsiverða háttsemi og hver viðurlög skuli vera við því
(Lögfræðiorðabók. Ritstj. Páll Sigurðsson. Bókaútgáfan CODEX - Lagastofnun Háskóla Íslands. Reykjavík, 2008.) - Rit
-
[is]
Tilskipun Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) 2015/2302 frá 25. nóvember 2015 um pakkaferðir og samtengda ferðatilhögun og um breytingu á reglugerð (EB) nr. 2006/2004 og tilskipun Evrópuþingsins og ráðsins 2011/83/ESB og niðurfellingu á tilskipun ráðsins 90/314/EBE
- [en] Directive (EU) 2015/2302 of the European Parliament and of the Council of 25 November 2015 on package travel and linked travel arrangements, amending Regulation (EC) No 2006/2004 and Directive 2011/83/EU of the European Parliament and of the Council and repealing Council Directive 90/314/EEC
- Skjal nr.
- 32015L2302
- Athugasemd
-
Sjá einnig titil í titlasafni þýðingamiðstöðvar (32012R1215)
- Orðflokkur
- no.
- Kyn
- hk.
Takk fyrir
Ábendingin verður notuð til að bæta gæði þjónustu og upplýsinga á vef Stjórnarráðsins. Hikaðu ekki við að hafa samband ef þig vantar aðstoð.