Hugtakasafn þýðingamiðstöðvar utanríkisráðuneytisins
Hugtakasafn : Eitt hugtak
- ÍSLENSKA
- réttur til lífs
- ENSKA
- right to life
- FRANSKA
- droit à la vie
- Svið
- lagamál
- Dæmi
-
[is]
Líkamlegt, kynferðislegt og andlegt ofbeldi gegn börnum, ungu fólki og konum, þ.m.t. hótanir um slíkt athæfi, þvingun eða handahófskennd frelsissvipting, í opinberu lífi eða einkalífi, er brot á rétti þeirra til lífs, öryggis, frelsis, mannlegrar reisnar og líkamlegrar og tilfinningalegrar friðhelgi svo og alvarleg ógnun við líkamlega heilsu og geðheilsu fórnarlamba ofbeldis af þessu tagi.
- [en] Physical, sexual and psychological violence against children, young people and women, including threats of such acts, coercion or arbitrary deprivation of liberty, whether occurring in public or private life, constitute a breach of their right to life, safety, freedom, dignity and physical and emotional integrity and a serious threat to the physical and mental health of the victims of such violence.
- Skilgreining
-
réttindi sem vernduð eru af ýmsum mannréttindasáttmálum er felast í því að vernda skuli rétt hvers manns til lífs og að bannað sé að taka líf manns, sbr. t.d. 2. gr. MSE [mannréttindasáttmála Evrópu, sbr. lög nr. 62/1994]
(Lögfræðiorðabók. Ritstj. Páll Sigurðsson. Bókaútg. CODEX - Lagastofnun HÍ. Reykjavík, 2008.) - Rit
-
[is]
Ákvörðun Evrópuþingsins og ráðsins nr. 803/2004/EB frá 21. apríl 2004 um samþykkt aðgerðaáætlunar Bandalagsins (2004 til 2008) um að koma í veg fyrir og berjast gegn ofbeldi gegn börnum, ungu fólki og konum og að vernda fórnarlömb og áhættuhópa (Daphne II-áætlunin)
- [en] Decision No 803/2004/EC of the European Parliament and of the Council of 21 April 2004 adopting a programme of Community action (2004 to 2008) to prevent and combat violence against children, young people and women and to protect victims and groups at risk (the Daphne II programme)
- Skjal nr.
- 32004D0803
- Aðalorð
- réttur - orðflokkur no. kyn kk.
Takk fyrir
Ábendingin verður notuð til að bæta gæði þjónustu og upplýsinga á vef Stjórnarráðsins. Hikaðu ekki við að hafa samband ef þig vantar aðstoð.