Hugtakasafn þýðingamiðstöðvar utanríkisráðuneytisins
Hugtakasafn : Eitt hugtak
- ÍSLENSKA
- lagaákvæði
- ENSKA
- statutory requirement
- Svið
- lagamál
- Dæmi
-
[is]
Skoðanirnar skulu tryggja að farið sé að lagaákvæðum, sem fánaríkið gefur út, eða sem gefin eru út fyrir hönd þess, einkum þau sem varða smíði, niðurhólfun og stöðugleika, vélbúnað og rafbúnað, lestun og stöðugleika, brunavarnir, hámarksfjölda farþega, björgunarbúnað og flutning hættulegs varnings, fjarskipti og leiðsögu. Að því er þetta varðar skulu skoðanirnar taka til eftirfarandi: ...
- [en] The inspections shall ensure that statutory requirements issued by or on behalf of the flag State, in particular those relating to construction, subdivision and stability, machinery and electrical installations, loading and stability, fire protection, maximum number of passengers, life saving appliances and the carriage of dangerous goods, radiocommunications and navigation are fulfilled. For that purpose, the inspections shall include: ...
- Skilgreining
-
afmörkuð fyrirmæli í settum lögum. Fleiri en eitt l. geta verið í einni lagagrein
(Lögfræðiorðabók. Ritstj. Páll Sigurðsson. Bókaútgáfan CODEX - Lagastofnun Háskóla Íslands. Reykjavík, 2008.) - Rit
-
[is]
Tilskipun Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) 2017/2110 frá 15. nóvember 2017 um skoðunarkerfi fyrir öruggan rekstur ekjufarþegaskipa og háhraðafarþegafara í áætlunarferðum og um breytingu á tilskipun 2009/16/EB og niðurfellingu á tilskipun ráðsins 1999/35/EB
- [en] Directive (EU) 2017/2110 of the European Parliament and of the Council of 15 November 2017 on a system of inspections for the safe operation of ro-ro passenger ships and high-speed passenger craft in regular service and amending Directive 2009/16/EC and repealing Council Directive 1999/35/EC
- Skjal nr.
- 32017L2110
- Athugasemd
-
Fleiri tillögur að þýðingu þessa hugtaks eru: ,lagaskilyrði´, ,skilyrði að lögum´ og ,lagaáskilnaður´.
- Orðflokkur
- no.
- Kyn
- hk.
Takk fyrir
Ábendingin verður notuð til að bæta gæði þjónustu og upplýsinga á vef Stjórnarráðsins. Hikaðu ekki við að hafa samband ef þig vantar aðstoð.