Hugtakasafn þýðingamiðstöðvar utanríkisráðuneytisins
Hugtakasafn : Eitt hugtak
- ÍSLENSKA
- frjálsir fjármagnsflutningar
- ENSKA
- free movement of capital
- DANSKA
- fri bevægelighed for kapital
- SÆNSKA
- fri rörlighet för kapital
- FRANSKA
- libre circulation des capitaux
- ÞÝSKA
- freier Kapitalverkehr
- Svið
- lagamál
- Dæmi
-
[is]
Komist ráðið að þeirri niðurstöðu að ráðstafanir þessar hamli frjálsum fjármagnsflutningum innan Bandalagsins umfram það sem nauðsynlegt er til að leysa úr vandanum getur það, með auknum meirihluta að fenginni tillögu framkvæmdastjórnarinnar, ákveðið að hlutaðeigandi aðildarríki skuli breyta ráðstöfunum sínum eða nema þær úr gildi.
- [en] Should the Council find that these measures are restricting the free movement of capital within the Community to a greater extent than is required for the purpose of overcoming the difficulties, it may, acting by a qualified majority on a proposal from the Commission, decide that the State concerned shall amend or abolish these measures.
- Skilgreining
-
(í Evrópurétti) frelsi til að færa fjármagn og fjárfesta og frelsi til að greiða svonefndar gengar greiðslur [greiðslur sem eru tengdar tilteknum lögggerningi sem er grundvöllur þeirra] í tengslum við vöruviðskipti og aðra þætti fjórfrelsisins
(Lögfræðiorðabók. Ritstj. Páll Sigurðsson. Bókaútgáfan CODEX - Lagastofnun Háskóla Íslands. Reykjavík, 2008.) - Rit
-
[is]
RÍKJARÁÐSTEFNAN um HINN SAMEIGINLEGA MARKAÐ OG KJARNORKUBANDALAG EVRÓPU, LOKAGERÐ
- [en] THE INTERGOVERNMENTAL CONFERENCE on the COMMON MARKET AND EURATOM, FINAL ACT
- Skjal nr.
- 11957E EBE meginmál
- Athugasemd
- Sjá einnig Rómarsáttmála, 227 (8a)
- Aðalorð
- fjármagnsflutningur - orðflokkur no. kyn kk.
- ENSKA annar ritháttur
- free capital movement
Takk fyrir
Ábendingin verður notuð til að bæta gæði þjónustu og upplýsinga á vef Stjórnarráðsins. Hikaðu ekki við að hafa samband ef þig vantar aðstoð.