Hoppa yfir valmynd

Hugtakasafn þýðingamiðstöðvar utanríkisráðuneytisins

Leitarorð Leitartungumál
Nánari leit  |  Fletting sviða

Hugtakasafn : Eitt hugtak
ÍSLENSKA
áverki á taugar og æðar
ENSKA
neurovascular injury
Svið
lyf
Dæmi
[is] 4.4. Að því er varðar fitusundrunartæki skulu framleiðendur einkum, til viðbótar við áhætturnar sem eru tilgreindar í lið 4.2, greina, uppræta eða draga eins og framast er unnt úr hugsanlegum áhættum sem tengjast eftirfarandi hættum eða skaða:

a) bruna á skurðsvæðum og yfirliggjandi vef,
b) öðrum skaðlegum áhrifum af innri eða ytri staðbundinni losun orku,
c) of mikilli útsetningu,
d) áverkum á taugar og æðar og staðbundinn vef, þ.m.t. skerðing á starfsemi skyntauga í húð,
e) endurmyndun kollagens sem getur leitt til nýmyndunar á vef (e. neoformation),
f) endurbyggingu leðurhúðar, með vísan til netlags (e. reticular dermis),
g) afmyndun líkamans eða ámóta ófullnægjandi fagurfræðilegri útkomu sem veldur þörf fyrir læknisfræðilegt inngrip,
h) að því er varðar fitusundrunartæki sem eru inngripstæki, hættur sem tengjast tegundum og stærðum skurða.


[en] 4.4. For lipolysis devices, in addition to those risks listed in Section 4.2, manufacturers shall in particular analyse, eliminate or reduce as far as possible risks related to the following hazards or harms:

a) burns to incision sites and overlying tissue;
b) other harmful effects of the internal or external local discharge of energy;
c) over-exposure;
d) neurovascular and local tissue injury, including reduction in cutaneous sensory nerve function;
e) remodelling of collagen that may lead to neoformations;
f) reorganisation of the dermis, with reference to reticular dermis;
g) body deformity or similar poor aesthetic outcome causing the need for medical intervention;
h) for lipolysis devices that are surgically invasive, the hazards linked to the types and sizes of incision.


Rit
[is] Framkvæmdarreglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2022/2346 frá 1. desember 2022 um sameiginlegar forskriftir fyrir flokka vara án ætlaðs læknisfræðilegs tilgangs sem eru tilgreindir í XVI. viðauka við reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) 2017/745 um lækningatæki

[en] Commission Implementing Regulation (EU) 2022/2346 of 1 December 2022 laying down common specifications for the groups of products without an intended medical purpose listed in Annex XVI to Regulation (EU) 2017/745 of the European Parliament and of the Council on medical devices

Skjal nr.
32022R2346
Aðalorð
áverki - orðflokkur no. kyn kk.

Var efnið hjálplegt?Nei
Takk fyrir

Ábendingin verður notuð til að bæta gæði þjónustu og upplýsinga á vef Stjórnarráðsins. Hikaðu ekki við að hafa samband ef þig vantar aðstoð.

Af hverju ekki?

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum

Vefurinn notar vefkökur til að bæta upplifun notenda og greina umferð um vefinn. Lesa meira