Hugtakasafn þýðingamiðstöðvar utanríkisráðuneytisins
Hugtakasafn : Eitt hugtak
- ÍSLENSKA
- yrki
- ENSKA
- variety
- DANSKA
- varietet
- SÆNSKA
- varietet
- FRANSKA
- variété
- ÞÝSKA
- Varietas, Varietät
- LATÍNA
- varietas
- Svið
- landbúnaður
- Dæmi
-
[is]
Til að tryggja varðveislu á upprunastað og sjálfbæra notkun erfðaauðlinda plantna skal rækta og setja staðaryrki og yrki, sem hafa verið ræktuð samkvæmt hefð á tilteknum stöðum og svæðum og sem eru í hættu vegna erfðatæringar (hér á eftir nefnd varðveisluyrki), á markað jafnvel þótt þau uppfylli ekki almennar kröfur að því er varðar samþykki fyrir yrkjum og setningu fræs á markað. Til viðbótar við það almenna markmið að vernda erfðaauðlindir plantna eru sérstakir hagsmunir fólgnir í því að vernda þessi yrki sökum þess að þau eru einkar vel aðlöguð tilteknum, staðbundnum aðstæðum.
- [en] In order to ensure in situ conservation and the sustainable use of plant genetic resources, landraces and varieties which have been traditionally grown in particular localities and regions and are threatened by genetic erosion (conservation varieties) should be grown and marketed even where they do not comply with the general requirements as regards the acceptance of varieties and the marketing of seed. In addition to the general aim of protecting plant genetic resources, the particular interest of preserving these varieties lies in the fact that they are especially well adapted to particular local conditions.
- Skilgreining
- [en] (afbrigði:) a category intermediate in rank between species(or subspecies)and forma, given a Latin name preceded by var (from the Latin varietas), based on a smaller number of correlated characters that are used to differentiate species or subspecies and having a more restricted geographical occurrence (IATE)
- Rit
-
[is]
Tilskipun framkvæmdastjórnarinnar 2009/145/EB frá 26. nóvember 2009 um tilteknar undanþágur sem varða samþykki fyrir staðaryrkjum og yrkjum í landbúnaði, sem hefð er fyrir því að rækta á tilteknum stöðum og svæðum og eru í hættu vegna erfðatæringar, og fyrir yrkjum grænmetis, sem hafa ekkert raunverulegt gildi í ræktun í viðskiptaskyni, en hafa verið þróuð til ræktunar við sérstök skilyrði og um setningu fræs af þessum staðaryrkjum og yrkjum á markað
- [en] Commission Directive 2009/145/EC of 26 November 2009 providing for certain derogations, for acceptance of vegetable landraces and varieties which have been traditionally grown in particular localities and regions and are threatened by genetic erosion and of vegetable varieties with no intrinsic value for commercial crop production but developed for growing under particular conditions and for marketing of seed of those landraces and varieties
- Skjal nr.
- 32009L0145
- Athugasemd
-
,Variety´ er þýtt sem ,afbrigði´ ef um villtar jurtir er að ræða en þýðingin ,yrki´ er notuð um fóður-, mat- og skrautjurtir. Ýmis afbrigði plantna njóta einkaréttar og nefnast ,yrki´ á íslensku (e. einnig variety). Yrki heitir ,sort´ á dönsku og sænsku. Yrki er yfirleitt afrakstur og ávinningur kynbóta ræktenda plantna. Yrki er planta eða plöntuhópur, yfirleitt af einni plöntu kominn, sem hafa aðra eiginleika en megintegundin og það gefur viðkomandi yrki gildi. Yrki er því yfirleitt n.k. ræktunarafbrigði plöntutegundar.
- Orðflokkur
- no.
- Kyn
- hk.
- ÍSLENSKA annar ritháttur
- afbrigði
Takk fyrir
Ábendingin verður notuð til að bæta gæði þjónustu og upplýsinga á vef Stjórnarráðsins. Hikaðu ekki við að hafa samband ef þig vantar aðstoð.