Hugtakasafn þýðingamiðstöðvar utanríkisráðuneytisins
Hugtakasafn : Eitt hugtak
- ÍSLENSKA
- bálkur Q - Heilbrigðis- og félagsþjónusta
- ENSKA
- section Q - Human health and social work activities
- Svið
- hagskýrslugerð
- Dæmi
-
[is]
Hagskýrslurnar skulu taka til allrar starfsemi sem er tilgreind í bálkum B (Námugröftur og vinnsla hráefna úr jörðu), C (Framleiðsla), D (Rafmagns-, gas- og hitaveitur), E (Vatnsveita, fráveita, meðhöndlun úrgangs og afmengun), F (Byggingarstarfsemi og mannvirkjagerð), G (Heild- og smásöluverslun, viðgerðir á vélknúnum ökutækjum og bifhjólum), H (Flutningar og geymsla), I (Rekstur gististaða og veitingarekstur), J (Upplýsingar og fjarskipti), K (Fjármála- og vátryggingastarfsemi), L (Fasteignaviðskipti), M (Sérfræðileg, vísindaleg og tæknileg starfsemi), N (Leigustarfsemi og ýmis sérhæfð þjónusta), P (Fræðslustarfsemi), Q (Heilbrigðis- og félagsþjónusta), R (Menningar-, íþrótta- og tómstundastarfsemi), og S (Félagasamtök og önnur þjónustustarfsemi) í hinni tölfræðilegu atvinnugreinaflokkun Evrópubandalaganna (NACE, 2. endursk.).
- [en] The statistics shall cover all economic activities defined in sections B (Mining and quarrying), C (Manufacturing), D (Electricity, gas, steam and air conditioning supply), E (Water supply; sewerage, waste management and remediation activities), F (Construction), G (Wholesale and retail trade; repair of motor vehicles and motorcycles), H (Transportation and storage), I (Accommodation and food service activities), J (Information and communication activities), K (Financial and insurance activities), L (Real estate activities), M (Professional, scientific and technical activities), N (Administrative and support service activities), P (Education), Q (Human health and social work activities), R (Arts, entertainment and recreation activities) and S (Other service activities) of the statistical classification of economic activities in the European Community (NACE Rev. 2).
- Rit
-
[is]
Reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (EB) nr. 1893/2006 frá 20. desember 2006 um stofnun atvinnugreinaflokkunar Evrópubandalaganna (NACE, 2. endursk.) og um breytingu á reglugerð ráðsins (EBE) nr. 3037/90 sem og tilteknum EB-reglugerðum um sérstök hagskýrslusvið
- [en] Regulation (EC) No 1893/2006 of the European Parliament and of the Council of 20 December 2006 establishing the statistical classification of economic activities NACE Revision 2 and amending Council Regulation (EEC) No 3037/90 as well as certain EC Regulations on specific statistical domains
- Skjal nr.
- 32006R1893
- Athugasemd
-
Til þessarar deildar telst starfsemi sjúkrahúsa til almennra eða sérhæfðra lækninga, skurðlækninga, geðlækninga og fíkniefnameðferða. Einnig telst hér starfsemi hressingarhæla, hjúkrunarheimila, geðsjúkrahúsa, endurhæfingarstöðva, og annarra heilbrigðisstofnana sem veita greiningar- og læknismeðferð. Til þessarar deildar teljast einnig læknaviðtöl og læknismeðferð hjá heimilislæknum, sérfræðingum og skurðlæknum, svo og starfsemi tannlækna og tannréttingar. Til þessarar deildar telst einnig starfsemi á heilbrigðissviði sem ekki fer fram á sjúkrahúsum eða undir handleiðslu lækna heldur aðila sem hafa tilskilin réttindi til að meðhöndla sjúklinga (ÍSAT2008). Atvinnugreinaflokkunin ÍSAT2008 tók gildi 1. jan. 2008 (http://www.hagstofa.is/Pages/1830). Flokkunin er byggð á atvinnugreinaflokkun Evrópusambandsins (Nomenclature of Economic Activities in the European Union, NACE).
Takk fyrir
Ábendingin verður notuð til að bæta gæði þjónustu og upplýsinga á vef Stjórnarráðsins. Hikaðu ekki við að hafa samband ef þig vantar aðstoð.