Hugtakasafn þýðingamiðstöðvar utanríkisráðuneytisins
Hugtakasafn : Eitt hugtak
- ÍSLENSKA
- þriggja þrepa prófið
- ENSKA
- three-step test
- Svið
- hugverkaréttindi
- Dæmi
-
[is]
... sem árétta skyldur samningsaðila samkvæmt gildandi alþjóðasáttmálum um vernd höfundarréttar og mikilvægi og sveigjanleika þriggja þrepa prófsins hvað varðar takmarkanir og undantekningar sem komið var á í 2. mgr. 9. gr. Bernarsáttmálans til verndar bókmenntum og listaverkum og öðrum alþjóðlegum gerningum, ...
- [en] ... Reaffirming the obligations of Contracting Parties under the existing international treaties on the protection of copyright and the importance and flexibility of the three-step test for limitations and exceptions established in Article 9(2) of the Berne Convention for the Protection of Literary and Artistic Works and other international instruments, ...
- Rit
-
[is]
Marakess-sáttmálinn um að greiða fyrir aðgengi þeirra sem eru blindir, sjónskertir eða glíma við aðra prentleturshömlun að útgefnum verkum
- [en] Marrakesh Treaty to Facilitate Access to Published Works for Persons Who Are Blind, Visually Impaired, or Otherwise Print Disabled
- Skjal nr.
- UÞM2015110004
- Athugasemd
-
Um þetta segir í Wikipediu: Þriggja þrepa prófið er heiti á takmörkunum á undanþágum frá einkarétti höfundar sem settar voru fyrst fram í Bernarsáttmálanum eftir endurskoðun hans í Stokkhólmi 1967. Slíkt þriggja þrepa skilyrði hefur síðan ratað inn í höfundalög ýmissa landa og er hluti af ýmsum alþjóðlegum samningum um hugverkarétt.
Samkvæmt þriggja þrepa prófinu verða undanþágur frá einkarétti höfundar að uppfylla þrjú skilyrði:
þær skulu eiga við um sérstök afmörkuð tilfelli
þær mega ekki brjóta í bága við eðlilega hagnýtingu verksins af hálfu höfundar
þær mega ekki raska lögmætum hagsmunum höfundar. - Aðalorð
- próf - orðflokkur no. kyn hk.
Takk fyrir
Ábendingin verður notuð til að bæta gæði þjónustu og upplýsinga á vef Stjórnarráðsins. Hikaðu ekki við að hafa samband ef þig vantar aðstoð.