Hugtakasafn þýðingamiðstöðvar utanríkisráðuneytisins
Hugtakasafn : Eitt hugtak
- ÍSLENSKA
- Ríóyfirlýsingin um umhverfi og þróun
- ENSKA
- Rio Declaration on Environment and Development
- Svið
- umhverfismál
- Dæmi
- væntanlegt
- Rit
- Stjórnartíðindi Evrópusambandsins L 158, 30.4.2004, 7
- Skjal nr.
- 32004R0850
- Athugasemd
-
Árið 1992 stóðu Sameinuðu þjóðirnar fyrir leiðtogafundi í Rio de Janero undir heitinu ,Ráðstefna um umhverfi og þróun´. Í daglegu tali er ráðstefnan kölluð ,Ríófundurinn´ (e. The Rio Summit). Hann telst tímamótafundur, ekki aðeins sökum þess að þetta var einn stærsti fundur sem alþjóðasamfélagið hefur staðið fyrir, heldur ekki síður vegna þeirra samninga og samþykkta sem hann skilaði.
Ekki er hægt að tala um einn ,Ríósáttmála´ heldur er um nokkra samninga og samþykktir að ræða:
Ríóyfirlýsingin um umhverfi og þróun (e. The Rio Declaration on Environment and Development),
áætlun 21 (e. Agenda 21),
meginreglur fyrir skógrækt (e. Forest Principles),
rammasamningur um loftslagsbreytingar (e. Framework Convention on Climate Change (FCCC)),
samningur um líffræðilega fjölbreytni (e. Convention on Biological Diversity (CBD)).
Vísindavefurinn.
Íslenska þýðingu á Ríóyfirlýsingunni má finna í Alþt. 1993-1994, A-deild, þskj. 1182, bls. 5053-5057. - Aðalorð
- Ríóyfirlýsing - orðflokkur no. kyn kvk.
Takk fyrir
Ábendingin verður notuð til að bæta gæði þjónustu og upplýsinga á vef Stjórnarráðsins. Hikaðu ekki við að hafa samband ef þig vantar aðstoð.