Hugtakasafn þýðingamiðstöðvar utanríkisráðuneytisins
Hugtakasafn : Eitt hugtak
- ÍSLENSKA
- ráðherraráðið
- ENSKA
- Council of Ministers
- DANSKA
- EU''s Ministerråd
- SÆNSKA
- ministerrådet
- FRANSKA
- Conseil des ministres
- ÞÝSKA
- EG-Ministerrat
- Svið
- stofnanir
- Dæmi
-
[is]
Í orðsendingu framkvæmdastjórnarinnar til Evrópuþingsins og ráðherraráðsins, sem ber yfirskriftina Stefnumörkun á sviði hljóð- og myndmiðlunar: næstu áfangar, viðurkennir framkvæmdastjórnin þörfina á auknum opinberum stuðningi, einkum á vettvangi bandalagsins, í því skyni að efla samkeppnishæfni evrópsks hljóð- og myndmiðlaiðnaðar.
- [en] In the communication from the Commission to the European Parliament and the Council of Ministers entitled "Audiovisual policy: Next Steps" the Commission recognises the need for increased public support, particularly at Community level, for strengthening the competitiveness of the European audiovisual industry.
- Rit
-
[is]
Ákvörðun ráðsins 2000/821/EB frá 20. desember 2000 um framkvæmd áætlunar um að hvetja til þróunar, dreifingar og kynningar á evrópskum hljóð- og myndverkum (MEDIA plús - þróun, dreifing og kynning) (2001-2005)
- [en] Council Decision 2000/821/EC of 20 December 2000 on the implementation of a programme to encourage the development, distribution and promotion of European audiovisual works (MEDIA Plus - Development, Distribution and Promotion) (2001-2005)
- Skjal nr.
- 32000D0821
- Athugasemd
-
Ráðherraráðið/[ráð Evrópusambandsins] (Council of the European Union, samh. Council of Ministers)
er vettvangur aðildarríkjanna og er skipað einum ráðherra frá hverju aðildarríki. Ráðherraráðið fer með löggjafarvald í ESB ásamt Evrópuþinginu, undirritar samninga við önnur ríki og samtök, samhæfir stefnu og aðgerðir aðildarríkjanna í mörgum málaflokkum og hefur ákveðið framkvæmdavald. Hvert aðildarríkjanna á einn fulltrúa í ráðherraráðinu, óháð íbúafjölda. Samsetning ráðsins fer eftir málaflokkum. Þannig funda landbúnaðarráðherrar um landbúnaðarmál, umhverfismálaráðherrar um umhverfismál o.s.frv. Ráðið tekur ákvarðanir ýmist með einróma samþykki (100% atkvæða), auknum meirihluta (73,9%) eða með einföldum meirihluta (51%) eftir því hvaða málefni er til umræðu. Atkvæðavægi ríkjanna fer eftir stærð þeirra. Þann 1. nóvember 2004 tók gildi ný skipting á atkvæðavægi ríkjanna samkvæmt Nice-sáttmálanum. Fleiri ákvarðanir eru nú teknar með auknum meirihluta en áður.
Heimild: www.esb.is (vefur fastanefndar framkvæmdastjórnar ESB fyrir Ísland og Noreg).
Sjá einnig Council of the European Union (ráð Evrópusambandsins) og European Council (leiðtogaráðið). - Orðflokkur
- no.
- Kyn
- hk.
Takk fyrir
Ábendingin verður notuð til að bæta gæði þjónustu og upplýsinga á vef Stjórnarráðsins. Hikaðu ekki við að hafa samband ef þig vantar aðstoð.