Hugtakasafn þýðingamiðstöðvar utanríkisráðuneytisins
Hugtakasafn : Eitt hugtak
- ÍSLENSKA
- breytingarfölsuð skilríki
- ENSKA
- falsified documents
- FRANSKA
- documents falsifiés
- Svið
- innflytjendamál
- Dæmi
-
[is]
Til að meta hættuna á ólöglegum innflytjendum er nauðsynlegt að auka samstarf milli sendiráða og ræðisskrifstofa þegar ákvarða skal hvaða viðbótar- og/eða aukagagna skuli krefjast við útgáfu vegabréfsáritana og samþykkja sameiginlegar aðferðir við að greina frumfölsuð eða breytingarfölsuð skilríki á skilvirkari hátt.
- [en] In order to assess an immigration risk, it appears necessary further to step up local consular cooperation in determining what supplementary and/or additional documents should be required for issuing visas and as regards the adoption of common mechanisms for detecting false or falsified documents more effectively.
- Rit
-
[is]
Ákvörðun ráðsins frá 22. desember 2003 um breytingu á þriðju undirgrein (grunnforsendur við meðferð umsókna) V. hluta Sameiginlegu fyrirmælanna til sendiráða og ræðisskrifstofa
- [en] Council Decision of 22 December 2003 amending the third subparagraph (Basic criteria for examining aplications) of Part V of the Common Consular Instructions (2004/14/EC)
- Skjal nr.
- 32004D0014
- Athugasemd
-
Um breytingarfölsun er að ræða þegar ósviknum persónuskilríkjum er breytt, t.d. með því að setja aðra mynd í vegabréf eða breyta nafni í vegabréfi. Nú er frekar talað um ,breytifölsuð skilríki´. Sjá einnig til samanburðar ,frumfölsuð skilríki´ (false documents) og ,grunnfölsuð skilríki´ (counterfeited documents).
- Aðalorð
- skilríki - orðflokkur no. kyn hk.
- Önnur málfræði
- fleirtöluorð, nafnliður
- ÍSLENSKA annar ritháttur
- breytifölsuð skilríki
Takk fyrir
Ábendingin verður notuð til að bæta gæði þjónustu og upplýsinga á vef Stjórnarráðsins. Hikaðu ekki við að hafa samband ef þig vantar aðstoð.