Hugtakasafn þýðingamiðstöðvar utanríkisráðuneytisins
Hugtakasafn : Eitt hugtak
- ÍSLENSKA
- ráð Evrópusambandsins
- ENSKA
- Council of the European Union
- DANSKA
- Rådet for Den Europæiske Union, Rådet
- SÆNSKA
- Europeiska unionens råd, rådet
- FRANSKA
- Conseil de l´Union européenne, Conseil
- ÞÝSKA
- Rat der Europäischen Union, Rat
- Samheiti
- ráðherraráðið
- Svið
- stofnanir
- Dæmi
-
[is]
Aðildarríkið sem fer með formennsku í ráði Evrópusambandsins skal eiga frumkvæðið að slíkum fundum.
- [en] The Member State holding the Presidency of the Council of the European Union shall take the initiative to hold such meetings.
- Skilgreining
-
ráð Evrópusambandsins (e. Council of the European Union, einnig kallað ráðherraráðið (e. Council of Ministers) eða ráðið (e. Council)) fer með löggjafarvald í sambandinu ásamt Evrópuþinginu og samræmir stefnu og aðgerðir aðildarríkjanna í fjölmörgum málaflokkum. Ráðið hefur aðsetur í Brussel þar sem það fundar reglulega en í apríl, júní og október eru fundir þess haldnir í Lúxemborg.
Ráðherraráðið er alltaf skipað einum ráðherra frá hverju aðildarríki. Ráðið fundar í ólíkum samsetningum eftir viðfangsefnum. Þannig funda landbúnaðarráðherrar um landbúnaðarmál, umhverfismálaráðherrar um umhverfismál og svo framvegis ...
(EVRÓPUVEFURINN Upplýsingaveita um Evrópusambandið og Evrópumál) - Rit
-
[is]
Ákvörðun ráðsins 2001/792/EB, KBE frá 23. október 2001 um að koma á Bandalagskerfi til að stuðla að auknu samstarfi við hjálparaðgerðir á sviði almannavarna
- [en] Council Decision 2001/792/EC, Euratom of 23 October 2001 establishing a Community mechanism to facilitate reinforced cooperation in civil protection assistance interventions
- Skjal nr.
- 32001D0792
- Athugasemd
-
Ráð Evrópusambandsins/ráðherraráðið (e. Council of the European Union, samh. Council of Ministers) er vettvangur aðildarríkjanna og er skipað einum ráðherra frá hverju aðildarríki.
Sjá einnig ,European Council´ (leiðtogaráðið). - Aðalorð
- ráð - orðflokkur no. kyn hk.
- ÍSLENSKA annar ritháttur
- ráðið
- ENSKA annar ritháttur
- Council
Takk fyrir
Ábendingin verður notuð til að bæta gæði þjónustu og upplýsinga á vef Stjórnarráðsins. Hikaðu ekki við að hafa samband ef þig vantar aðstoð.