Hugtakasafn þýðingamiðstöðvar utanríkisráðuneytisins
Hugtakasafn : Eitt hugtak
- ÍSLENSKA
- Alþjóðasjóður um þróun landbúnaðar
- ENSKA
- International Fund for Agricultural Development
- FRANSKA
- Fonds international de développement agricole, FIDA
- ÞÝSKA
- Internationaler Fonds für landwirtschaftliche Entwicklung
- Svið
- alþjóðastofnanir
- Skilgreining
-
Samningur um stofnun Alþjóðasjóðs um þróun landbúnaðar (IFAD) var gerður í Róm hinn 13. apríl 1976, en ákvörðun um stofnun sjóðsins hafði verið tekin á matvælaráðstefnu Sameinuðu þjóðanna árið 1974. Sjóðurinn hóf starfsemi sína árið 1978 sem ein af sérstofnunum Sameinuðu þjóðanna. Markmið sjóðsins er að afla lánsfjármagns til þróunarverkefna í landbúnaði og sjávarútvegi, sem miða að aukinni fæðuframleiðslu hjá fátækustu þróunarríkjunum, en þau búa við mestan fæðuskort. Sjóðurinn veitir aðildarríkjum hagstæð lán og styrki til verkefna á sviði landbúnaðar og sjávarútvegs. Hann einbeitir sér að verkefnum, sem miða að því að þróa landbúnað og minnka þannig markvisst fátækt og hungur í heiminum. Starfsemi sjóðsins beinist að hópum í landbúnaðarsamfélögum, sem eiga undir högg að sækja, en gegna miklu hlutverki í fæðuframleiðslu, svo sem smábændum, hjarðmönnum, fiskimönnum, landbúnaðarverkamönnum, konum, minníhlutahópum og frumbyggjum. Þróunarríkin sjálf leggja umtalsvert til fjármögnunar sjóðsins. Aðildarríki eru nú 165.
(http://www.utanrikisraduneyti.is/verkefni/throunarsvid/althjodastofnanir/ifad) - Rit
-
Heimasíða utanríkisráðuneytis, 2007
- Athugasemd
-
Undirstofnun Sameinuðu þjóðanna
- Aðalorð
- alþjóðasjóður - orðflokkur no. kyn kk.
- Önnur málfræði
- nafnliður með forsetningarlið
- ÍSLENSKA annar ritháttur
- Alþjóðalandbúnaðarþróunarsjóðurinn
- ENSKA annar ritháttur
- IFAD
Takk fyrir
Ábendingin verður notuð til að bæta gæði þjónustu og upplýsinga á vef Stjórnarráðsins. Hikaðu ekki við að hafa samband ef þig vantar aðstoð.